9 / 18
Virk hreyfing
Öll börn og ungmenni ættu að hreyfa sig daglega í minnst 60 mínútur að meðaltali yfir vikuna. Hreyfingin ætti að vera eins fjölbreytt og mögulegt er. Það eflir flesta þætti líkamshreysti, þar á meðal þol, vöðvastyrk, liðleika, viðbragð og samhæfingu.
Með virkri hreyfingu er átt við til dæmis útileiki, íþróttaiðkun, sund, fjallgöngur, hlaup, röska göngu og hjólreiðar svo eitthvað sé nefnt.