Fara á efnissvæði
IS
EN
PL

Upplýsingar og leiðsögn um heilbrigðiskerfið

Kaflar
Flokkur
Útgáfudagur

Heilsugæslan

  • Hægt er að óska eftir ráðgjöf hjá hjúkrunarfræðingi í síma 1700  
  • Einnig er hægt að fá ráðgjöf inni í netspjalli heilsuveru hér á síðunni milli kl. 08:00 - 22:00
  • Ráðgjöf, tímabókun og mat á erindum er í síma 1700
  • Ef óskað er eftir tíma hjá heimilislækni þarf að hringja í 1700 eða á næstu heilsugæslustöð
  • Almennur opnunartími heilsugæslustöðva er á milli kl. 08:00 – 17:00 alla virka daga.
  • Sími heilsugæslustöðva er almennt opinn frá kl. 08:00 - 16:00
  • Skráning á heilsugæslustöð og verðskrá má finna á sjukra.is 
  • Finna næstu heilsugæslu hér
  • Í neyð hringja í 112

Önnur þjónusta heilsugæslunnar

Bólusetningar

Almennar bólusetningar

Barnabólusetningar gegn stífkrampa, barnaveiki, kíghósta og mænusótt þarf að endurtaka á 10 ára fresti. 

60 ára og eldri eða fólk haldið langvinnum sjúkdómum ætti að láta bólusetja sig gegn inflúensu og lungnabólgu af völdum Pnemokokkabakteríunnar.

Ef bólusetningar hafa átt sér stað utan Íslands er hægt að koma á heilsugæsluna með bólusetningarvottorð og fá sprauturnar skráðar inn í heilsuveru.  

Nánar um barnabólusetningar hér.

Nánar um viðhald bólusetninga hér

Ferðamenn

Á netspjalli hér á síðunni getur þú fengið ráðleggingar um þær bólusetningar sem þarf, hyggir þú á ferðalög. Valið er ferðalög og bólusetningaráðgjöf inni á netspjalli heilsuveru og þá koma upp staðlaðar spurningar um ferðalagið. Þegar búið er að gefa upp allar upplýsingar þá kemur bólusetningaráætlun fram inni á mínum síðum Heilsuveru, eftir þrjá til fimm virka daga. Fólk fær tilkynningu þegar áætlunin er tilbúin. Við gerð á bólusetningaráætlun er meðal annars tekið til skoðunar fyrri bólusetningar og tímalengd dvalar. 

Nánar um bólusetningar ferðamanna hér

Mæðravernd

Mæðraverndarþjónustan er ókeypis og geta verðandi mæður fengið þjónustu frá heilsugæslustöð í sínu hverfi eða valið aðra stöð. Skráning á heilsugæslustöð eða breyting á skráningu fer fram í réttindagátt á sjukra.is

Viðtöl og skoðanir eru í boði frá upphafi meðgöngu og fram að fæðingu. Fyrsta viðtal við ljósmóður er gjarnan í síma fljótlega eftir að þungun er staðfest með þungunarprófi. Mælt er með að fyrsta koma sé fyrir 12 vikna meðgöngu. Fjöldi mæðraskoðana fer svo eftir aðstæðum, oftast 8-10 skipti. Milli skoðana er hægt að fá símaráðgjöf hjá ljósmóður.

Til að bóka fyrsta viðtal þarf að hringja á þá heilsugæslustöð sem óskað er eftir þjónustu frá. 

Frekari upplýsingar má finna hér

Ung- og smábarnavernd

Ung- og smábarnavernd tekur við af mæðravernd þegar fjölskyldan kemur heim frá fæðingarstað og heimaþjónustu ljósmæðra lýkur.

Fyrstu vikurnar eftir fæðingu er hægt að fá vitjun frá hjúkrunarfræðingi heilsugæslunnar. Foreldrar eru beðnir um að hafa samband við hjúkrunarfræðing fljótlega eftir að heim er komið til að bóka fyrstu vitjun.

Fyrsta læknisskoðun á heilsugæslustöðinni er við 6 vikna aldur. 
Reglubundnar skoðanir eru hjá hjúkrunarfræðingi og lækni til skólaaldurs. Þá er fylgst með vexti og þroska barnanna og bólusetningum. Í skoðunum er ráðlagt m.a. um brjóstagjöf, svefnvandamál, aga og uppeldi, matarræði og slysavarnir. Auk þess er hægt að fá samband við hjúkrunarfræðing ef spurningar vakna varðandi barnið. 

Nánar um ung- og smábarnavernd hér.

Heilsuvernd skólabarna

Hjúkrunarfræðingar og læknar á heilsugæslustöðvum sjá um heilsuvernd skólabarna í hverfi stöðvanna. 
Helstu áherslur í heilsuvernd skólabarna eru:

  • Fræðsla og heilsuefling
  • Bólusetningar
  • Skimanir 
  • Viðtöl um heilsu og líðan
  • Umsjón og eftirlit með umönnun langveikra barna innan skólans
  • Ráðgjöf til nemenda, fjölskyldna þeirra og starfsfólks skólans 

Hægt er að fá símasamband við skólahjúkrunarfræðingana í gegnum skiptiborð skólanna.  

Nánar um heilsuvernd grunnskólabarna hér.

Krabbameinsskimanir

Hér á landi er skimað fyrir leghálskrabbameini og brjóstakrabbameini hjá konum.

Inn á þjónustuvefsjá Heilsuveru má sjá hvernig fyrirkomulagið er á skimunum um allt land. Velja þarf heilsugæslustöð á kortinu og smella á krabbameinsskimun undir þjónustu. Við hvetjum konur til að kynna sér þjónustuna vel og bregðast jákvætt við boði um skimun. 

Skipulagðri skimun fyrir ristil- og endaþarmskrabbameini hefur ekki enn verið komið á hérlendis eins og í sumum öðrum löndum. Hægt er að óska eftir slíkri rannsókn hjá heimilislækni en einnig er hægt er að bóka beint í ristilspeglun hjá sérfræðilækni.

Kynsjúkdómar

Ef óskað er eftir að láta skima fyrir kynsjúkdómum er hægt að bóka tíma á heilsugæslu eða hjá göngudeild kynsjúkdóma Landspítalans í síma 543-6050 milli kl 08:15-15:00

Frekari upplýsingar um kynsjúkdóma hér

Rannsóknir

Ef óskað er eftir blóðrannsókn þarf að hafa tilvísun frá lækni. Hægt er að bóka tíma hjá heimilislækni á næstu heilsugæslustöð. Þegar beiðni fyrir blóðprufu liggur fyrir þarf að hringja á heilsugæsluna og bóka tíma í blóðprufu eða mæta á rannsóknardeild Landspítala milli 08:00-15:30 alla virka daga.  

Sálfræðiþjónusta

Til þess að fá tíma hjá sálfræðingi heilsugæslunnar þarf að bóka tíma hjá heimilislækni og óska eftir tilvísun. Einnig er hægt bóka beint á stofu sálfræðings. Komugjald á heilsugæslu á dagvinnutíma er 500 kr. en komugjald á stofu er hærra.  

Veikindavottorð

Hægt er að sækja um veikindavottorð á mínum síðum á heilsuvera.is
Valið er skilaboð, ný skilaboð, vottorð – atvinnurekenda og skólavottorð.
Greitt er fyrir vottorðið sem birtist á mínum síðum eftir nokkra daga.

Önnur þjónusta

Læknavaktin

Læknavaktin sinnir vaktþjónustu á höfuðborgarsvæðinu þar sem aðeins sérfræðingar í heimilislækningum og reyndir sérnámslæknar veita læknisþjónustu alla virka daga frá kl.17:00 - 22:00 og frá kl. 9:00 - 22:00 um helgar og á helgidögum. 
Hægt er að óska eftir vitjun í síma 1700 frá kl.17:00 virka daga en frá kl. 08:00 um helgar og helgidaga. Vitjunum lýkur fyrir kl. 23:30 alla daga

Sjúkraþjálfun

Hægt er að bóka tíma hjá sjúkraþjálfara og fá 6 tíma niðurgreidda á ári, án beiðni frá lækni. (Gildir eingöngu hjá þjálfurum sem eru með samning við SÍ). Tilvísun gefur 15 skipta heimild í eitt ár frá upphafi meðferðar. 
Börn 2 -17 ára greiða ekkert gjald fyrir sjúkraþjálfun með framvísun beiðni frá lækni.  

Upplýsingar varðandi sjúkratryggingar má finna á sjukra.is

Sérfræðiþjónusta fyrir börn

Hægt er að bóka tíma beint hjá sérfræðilækni. Börn undir 2 ára aldri fá niðurgreidda þjónustu en börn frá tveggja og til og með sautján ára fá niðurgreiðslu á þjónustu ef beiðni/tilvísun frá heimilislækni er fyrir hendi. Án tilvísunar er greitt 30% samkvæmt gjaldskrá Sjúkratrygginga.