Solihull aðferðin og námskeiðin sem á henni byggja eru þróuð og gagnreynd af sérfræðingum í Bretlandi. Geðverndarfélag Íslands í samvinnu við Soihull og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins hafa komið námskeiðunum á íslensku og tvö þeirra eru nú aðgengilega fyrir alla sem áhuga hafa.
Námskeiðin hafa það að markmiði að efla foreldra og aðra umönnunaraðila í sínu hlutverki og gefa þeim innsýn í tilfinningaþroska barna hvar sem þau er stödd á þroskabrautinni. Námskeiðin auka skilning á tilfinningum, þroska og hegðun barna sem stuðlar að því að börnin verði sjálfsörugg, félagslynd og í góðum tengslum við tilfinningar sínar og umönnunaraðilar öruggari í sínu hlutverki.
Smelltu hér fyrir frekari upplýsingar um Solihull.
Hér fyrir neðan eru svo beinir tenglar á námskeið sem eru í boði á íslensku.
Þetta námskeið er fyrir alla foreldra, ömmur, afa og umönnunaraðila barna á aldrinum sex mánaða til 19 ára. Á þessu námskeiði er rými skapað til að hugsa um og íhuga þroska barns ykkar, hegðun þess og hvernig það tjáir sig.
Það eru mikilvægu tengslasamböndin í lífi barns sem móta tilfinningalega heilsu þess og velferð. Þessi mótun hefst á meðan barnið vex og þroskast í móðurkviði. Að skilja meðgönguna, fæðingarferlið og ungbarnið er ætlað öllum foreldrum, ömmum, öfum og umönnunaraðilum sem eru að fara að taka á móti nýju barni.