Go to program area
Go to program area

Netnámskeið Solihull

Solihull aðferðin og námskeiðin sem á henni byggja eru þróuð og gagnreynd af sérfræðingum í Bretlandi. Geðverndarfélag Íslands í samvinnu við Soihull og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins hafa komið námskeiðunum á íslensku og tvö þeirra eru nú aðgengilega fyrir alla sem áhuga hafa.

Námskeiðin hafa það að markmiði að efla foreldra og aðra umönnunaraðila í sínu hlutverki og gefa þeim innsýn í tilfinningaþroska barna hvar sem þau er stödd á þroskabrautinni. Námskeiðin auka skilning á tilfinningum, þroska og hegðun barna sem stuðlar að því að börnin verði sjálfsörugg, félagslynd og í góðum tengslum við tilfinningar sínar og umönnunaraðilar öruggari í sínu hlutverki. 

 

Smelltu hér fyrir frekari upplýsingar um Solihull.


Hér fyrir neðan eru svo beinir tenglar á námskeið sem eru í boði á íslensku.

Croppedsolihull Gedvernd

Námskeiðin

Að skilja barnið: Frá smábarni til unglings

Smelltu hér

Meðgangan, fæðingin og ungbarnið

Það eru mikilvægu tengslasamböndin í lífi barns sem móta tilfinningalega heilsu þess og velferð. Þessi mótun hefst á meðan barnið vex og þroskast í móðurkviði. Að skilja meðgönguna, fæðingarferlið og ungbarnið er ætlað öllum foreldrum, ömmum, öfum og umönnunaraðilum sem eru að fara að taka á móti nýju barni.

Smelltu hér