Fara á efnissvæði
IS
EN
PL

Meðgöngueitrun

Kaflar
Útgáfudagur

Meðgöngueitrun (e. pre-eclampsia) er sjúkdómur sem getur komið fram eftir 20. vikna meðgöngu og lýsir sér með hækkuðum blóðþrýstingi og eggjahvítu í þvagi. Oft finna konur engin einkenni og er því skimað fyrir sjúkdómnum í mæðraverndinni með því að mæla blóðþrýsting og rannsaka þvag.

Meðgöngueitrun er algeng en 2-8 af hundrað barnshafandi konum greinast með sjúkdóminn. Oftast er sjúkdómurinn vægur og hefur lítil áhrif á meðgönguna en um 1 af hverjum 200 barnshafandi konum fá alvarlega meðgöngueitrun sem getur verið lífshættuleg fyrir þær og ófædda barnið.

Alvarleg meðgöngueitrun getur truflað starfsemi nýrna, lifrar eða blóðstorkukerfisins. Hún getur haft áhrif á fylgjuna þannig að barnið vaxi ekki eðlilega og/eða legvatnið minnki.

Einkenni

Konur finna oft engin einkenni um meðgöngueitrun (e. preeclampsia) en fyrstu einkennin eru mælanleg því þau koma fram í hækkuðum blóðþrýstingi og eggjahvítu í þvagi. Þessir þættir eru því skoðaðir í mæðraverndinni.

Einkenni alvarlegrar meðgöngueitrunar geta verið:

  • Höfuðverkur sem lagast ekki við að taka væg verkjalyf.
  • Sjóntruflanir svo sem þokusýn eða eldglæringar.
  • Sár verkur undir rifjaboga.
  • Brjóstsviði/flökurleiki sem lagast ekki við að taka sýrubindandi lyf.
  • Skyndilegur bjúgur í andliti, höndum og/eða fótum.
  • Skyndileg mikil vanlíðan.

Þessi einkenni geta verið alvarleg á meðgöngu og ætti að hafa strax samband við heilsugæslu eða fæðingarstofnun utan dagvinnutíma ef þeirra verður vart.

Finna næstu bráðamóttöku eða heilsugæslustöð.

Aukin áhætta

Meðgöngueitrun getur komið fram í öllum meðgöngum en konur eru í meiri hættu ef:

  • Blóðþrýstingur er hár fyrir þungun.
  • Kona fékk meðgöngueitrun á fyrri meðgöngu.
  • Kona er með nýrnasjúkdóm, sykursýki eða sjálfsofnæmisjúkdóm eins og rauða úlfa (Lupus).

Aðrir áhættuþættir eru ekki eins skýrir en þó er meðgöngueitrun líklegri hjá konum sem :

  • Ganga með sitt fyrsta barn.
  • Eru 40 ára eða eldri.
  • Hafa ekki gengið með barn í meira en 10 ár.
  • Eru í mikilli yfirþyngd, líkamsþyngdarstuðull 35 eða meira.
  • Eiga móður eða systur sem fengu meðgöngueitrun.
  • Ganga með fleira en eitt barn. 

Ef eitthvað af þessu á við er mælt með því að konur taki inn lágskammta aspirín (hjartamagnyl) frá 12. viku meðgöngu og fram að fæðingu til þess að draga úr hættunni á að þær fái meðgöngueitrun.