Fara á efnissvæði
IS
EN
PL

Heilbrigð sambönd

Kaflar
Flokkur
Útgáfudagur

Þegar við deilum lífi okkar með öðrum er mikilvægt að velta fyrir sér hvað við viljum fá út úr sambandinu og hvernig við viljum sjá það þróast. Við þurfum að vita hvernig við viljum að komið sé fram við okkur og láta vita af því. Sambönd fólks eru mismunandi og ólík en það er mikilvægt að muna að ekkert samband er fullkomið. Engin manneskja er nákvæmlega eins og við viljum hafa hana. Allir hafa sína kosti og galla. Það getur því verið gott að skrifa niður hvað það er sem þú vilt fá út úr sambandinu og hvað þér finnst mikilvægast.

Hér eru nokkur dæmi um atriði sem líklega rata á lista nokkuð margra:

  • Að mér sé treyst
  • Að ég njóti hvatningar
  • Að við njótum samverunnar
  • Að komið sé fram við mig af hreinskilni
  • Að það sé séð um mig
  • Að borin sé virðing fyrir mér
  • Að það sé haldið utan um mig
  • Að ég njóti verndar
  • Að ég njóti trausts
  • Að við leiðumst

Er sambandið að gera það fyrir þig sem þú vilt?

Það getur verið gott að skoða reglulega listann sinn og velta því fyrir þér hvort þú sért að fá það sem skiptir máli út úr sambandinu. Það er sérstaklega mikilvægt ef þú efast um að sambandið sé eitthvað sem þú vilt halda í.

Að sama skapi er líka hollt að snúa dæminu við. Hvernig kemur þú fram í sambandinu? Gefur þú af þér í sambandinu? Það er ekki sanngjarnt að gera kröfur á aðra og leggja sig ekki fram sjálfur. Hver og einn ber ábyrgð á framkomu sinni við annað fólk.

Hvernig kemur fólk fram í heilbrigðu sambandi?

Í heilbrigðu sambandi ríkir jafnrétti, heiðarleiki, virðing og samskiptin eru góð. Í góðum samböndum eru góðu tímarnir fleiri en þeir slæmu.

Heiðarleiki

Það getur hljómað sem klisja en heiðarleiki er grunnur að öllum farsælum samböndum. Bæði hjá kærustupörum en líka í samböndum við fjölskyldu og vini er heiðarleiki mikilvægur. Í heiðarlegum samböndum geta báðir viðurkennt að hafa rangt fyrir sér, sagt sannleikann án þess að óttast og fyrirgefið mistök.

Virðing

Í góðum samböndum er virðing á báða bóga. Virðing er til dæmis að styðja við hinn í því sem hann eða hún hefur áhuga á. Það er mikilvægt að virða skoðanir annarra, vera næmur á tilfinningar og treysta hinum í sambandinu. Þegar virðing ríkir í sambandinu er annar ekki að reyna að stjórna hinum eða breyta því hvernig hann eða hún er.

Góð samskipti

Góð samskipti eru límið sem heldur fólki saman. Það er mikilvægt að geta rætt málin af heiðarleika. Maður þarf að hlusta á hinn aðilann og vera tilbúinn að ræða vandamál og ósamkomulag. Stundum verða rifrildin hreinlega til vegna misskilnings! 

Til að efla góð samskipti

• Verum nákvæm og skýr.
• Greinum frá tilfinningum okkar og spyrjum um tilfinningar hins aðilans.
• Reynum að setja okkur í spor hins aðilans og sjá málið frá hans sjónarhorni.
• Skoðum hvað það er sem skiptir okkur máli og hvað skiptir máli fyrir hinn aðilann.
• Veltið upp mögulegum lausnum þar sem báðir aðilar fá sem mest af því sem þeir vilja.

Tileinkaðu þér árangursríkar aðferðir til að leysa ágreining.

Forðumst

  • Niðrandi talsmáta
  • Uppnefningar
  • Að grípa fram í
  • Að kúga

 Hér má lesa nánar um góð samskipti og leiðir til að leysa ágreining.